Gjöf til Dalborgar
22 Mar 2024
Við í Dalborg erum einstaklega heppin með foreldra :)
Það er kominn þurrkari á Grænu deild sem við ætlum að prufa að nota næstu mánuði og sjá hvernig það kemur út í stað þurrkskápanna sem hafa verið að gefa upp öndina síðustu mánuði.
Það var hann Georg, faðir á grænu deild, sem kom með hugmyndina og lagði til þurrkara. Hann, ásamt öðrum föður á Grænu deild, komu og fjarlægðu fyrir okkur tvo þurrkskápa sem voru orðnir ónýtir og settu upp þurrkarann :)
Við þökkum þeim kærlega fyrir þetta framlag og við hlökkum til að sjá hvernig notkunin kemur út og hvort þetta sé eitthvað sem hægt verður að nota í leikskólastarfinu næstu árin.