news

Tónsmiðja Lemme Lindu

13 Sep 2018

Eins og einhverjir hafa tekið eftir þá voru haldnir Smiðjudagar í Fjarðabyggð í síðustu viku, dagana 3.-7. september. Margt skemmtilegt á boðstólnum fyrir öll börn í leik- og grunnskólum Fjarðabyggðar. Við í Dalborg fengum tónlistarkennarann Lemme Lindu í heimsókn og var hún með tónsmiðjur fyrir öll börn á aldrinum 2 - 5 ára :) Síðan var hún með örnámskeið fyrir starfsfólkið í lok dags. Börn og starfsfólk skemmtu sér vel og er starfsfólkið reynslunni ríkari.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá deginum :)



Fleiri myndir má sjá inn á heimasíðunni :)