Jólagjafirnar komu snemma í ár :)
24 Nóv 2022
Foreldrafélag leikskólans kom með snemmbúinn jólaglaðning til Dalborgar. Foreldrafélagið hefur síðustu ár verið að gefa einni deild á ári veglega og flotta mottu, nú var komið að grænu deild. Fyrir valinu var 3x2 m motta með flottum litum og formum. Einnig fengum við skemmtilegar tréfígúrur með hinum ýmsum starfsheitum, spil og söguspjöld. Mun þetta nýtast vel á allar deildirnar í málörvun og hópastarfi.
Við þökkum kærlega fyrir okkur :)