Jólaball og kirkjuheimsókn
23 Des 2025
Jólaball Dalborgar
Við í Dalborg gátum loksins verið með gott jólaball í nýjum sal leikskólans. Andri Bergmann kom og spilaði fyrir okkur nokkur lög. Jólasveinar mættu, dönsuðu í kringum jólatréð og gáfu börnunum ávaxtanammi :)


Börnin í þremur elstu árgöngum leikskólans fóru einnig í heimsókn í kirkjuna þar sem þau hittu Benjamín prest sem söng og spilaði fyrir þau og bauð síðan upp á piparkökur og djús.

