news

Förustafir í Dalborg

04 Feb 2026

Leikskólinn Dalborg fékk gefins Förustafi frá leikskóla á Akureyri. Guðlaug deildarstjóri Hólmaborgar hafði veg og vanda við að útvega dýrin, græja búr og fæðu handa skordýrinum.

Förustafir er ættbálkur fremur stórra ílangra skordýra sem sumir líkjast trjágreinum en aðrir laufblöðum. Förustafir eru laufætur og getur verið mjög erfitt að koma auga á þá í náttúrunni. Yfir 3000 tegundir förustafa eru þekktar. Flestar þeirra lifa í hitabeltinu en förustafir finnast í flestum löndum heims. (wikipedia)

Það verður spennandi að fylgjast með framvindunni næstu mánuði þar sem við fengum einnig gefins ungviði og egg :)