Bangsadagur/vika
17 Okt 2016
Alþjóðlegi bangsadagurinn fellur ár hvert á fæðingardag Theodore „Teddy“ Roosevelt, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, 27. október. Því er vikan 24.-28. október tileinkuð böngsum, bangsasögur lesnar, bangsalög sungin og börnin mega koma með bangsa í leikskólann á fimmtudeginum 27.október.
Minnum svo á hamingjudaginn á morgun 28.október og í þetta sinn er það náttfatadagur sem að Bláa deildin valdi.