news

Sumarlokun Dalborgar

27 Apr 2022

Bæjarráð hefur staðfest tillögu fræðslustjóra og fræðslunefndar, um sumarlokanir leikskóla Fjarðabyggðar á árinu 2022. Í starfsáætlun í Fjarðabyggðar er gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða tuttugu virkum dögum. Sumarlokun leikskólanna verður stillt af þannig að sumarlokun skólanna fimm spanni u.þ.b. tvo mánuði sumarsins.

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 20.06 - 15.07 - báðir dagar meðtaldir

Kæribær Fáskrúðsfirði 20.06 - 15.07 - báðir dagar meðtaldir

Lyngholt Reyðarfirði 04.07 - 29.07- báðir dagar meðtaldir

Eyrarvellir Norðfirði 15.07 - 12.08 - báðir dagar meðtaldir

Dalborg Eskifirði 20.07 - 17.08 - báðir dagar meðtaldir

Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis