news

Nýr bátur á leikskólalóðina í boði Eskju hf.

11 Jún 2018

Loksins, Loksins :)

Sumarið 2016 var leikskólanum gefinn nýr bátur á leikskólalóðina, var báturinn gefin af því tilefni að sjávarútvegsfyrirtækið hér á Eskifirði, Eskja hf. keypti sér nýtt uppsjávarveiðiskip sem fékk nafnið Aðalsteinn Jónsson og leysti af hólmi frystiskipið sem bar sama nafn.

Sökum ýmissa vandkvæða sem verða ekki tíunduð hér þá tókst ekki að setja upp bátinn á leikskólalóðinn fyrr en í síðustu viku.

Leikskólinn er afar þakklátur fyrir þessa frábæru gjöf og voru börnin búin að sakna gamla bátsins mikið.

Báturinn var síðan vígður á vorsýningu leikskólans og kom Benedikt Jóhannsson, yfirmaður landvinnslu til að afhenta bátinn sem að sjálfsögðu fékk nafnið Aðalsteinn Jónsson :)