news

Elstu börnin útskrifuð :)

24 maí 2018

Þann 22. maí héldu árgangur 2012 í útskriftarferð. Förinni var heitið út í Hólmanes með nesti. Rúta kom og sótti börn og starfsfólk kl 9:00 og skutlaði hún þeim upp að Völvuleiðinu þar sem þau borðuðu ávexti og lásu stutta sögu. Haldið var síðan af stað niður í Hólmanes, þar var tjaldað, grillaðar pylsur, leikið í fjörunni og annað skemmtilegt. Toppurinn á ferðinni var síðan þegar bátur frá björgunarsveitinni kom í fjöruna og sótti börnin í lok dags og skutlaði þeim aftur á Snillingadeildina þar sem útskriftin sjálf fór fram :), þar voru 12 börn útskrifuð og óskum við þeim til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni :)

Hér eru nokkrar myndir frá deginum og fleiri eru inn á heimasíðunni.