news

Dalborg fer í ytra mat

10 Sep 2018

Ágætu foreldrar.

Nú í september verður unnið að svokölluðu ytra mati á okkar leikskóla. Það felst meðal annars í því að matsaðilar frá Menntamálastofnun munu dvelja hér í leikskólanum dagana 19., 20. og 21. september og fara í vettvangsskoðanir á deildum leikskólans. Einnig taka þeir rýniviðtöl við ýmsa hópa; starfsmenn, foreldra og börn. Því má fólk gera ráð fyrir að óskað verði eftir þátttöku einhverra í umræðuhópa en valið verður í þá með slembiúrtaki. Foreldrum verður að sjálfsögðu kynnt fyrirfram ef börn þeirra lenda í slíku úrtaki.

Matsaðilar skoða auk þess öll möguleg gögn um skólann, bæði á heimasíðu, prentuð skjöl, kannanir og hvaðeina sem getur varpað ljósi á okkar leikskólastarf. Matinu er ætlað að vera leiðbeinandi og framfaramiðað. Sérstaklega er hugað að því sem er framúrskarandi gott og öðrum til eftirbreytni en að sjálfsögðu er það líka umbótamiðað og hugsað til að styrkja okkar ágæta leikskólastarf þegar til lengri tíma er litið.

Á hverju ári eru nokkrir leikskólar (og raunar grunnskólar líka) metnir með ytra mati og gert ráð fyrir að allir leikskólar landsins fari í gegnum sambærilegt mat og þannig þróist þetta sem sjálfsagður og eðlilegur hlutur leikskólastarfs. Það er Menntamálastofnun sem sér um framkvæmdina fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Matsaðilarnir sem koma til okkar heita Björk Ólafsdóttir og Kolbrún Vigfúsdóttir. Þær eru leikskólakennarar og með reynslu af því að starfa með börnum. Ef foreldrar óska eftir geta þeir haft beint samband við þær í gegnum netfangið: Bjork.Olafsdottir@mms.is eða í síma 898 6348

Með kveðju,

Þórdís Mjöll Benediktsdóttir